Allt brann sem brunnið gat í bílnum og þakkantur var tekinn að sviðna. Ljósm. mm

Eldri húsbíll brann

Snemma í morgun fékk Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna elds í húsbíl. Bíllinn stóð þétt upp við vegg Skagavershússins á Akranesi. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra var grunur um að haldið hafi verið til í bílnum í sumar og nálguðust slökkviliðsmenn verkefnið með tilliti til þess. Bíllinn reyndist hins vegar mannlaus. Var hann alelda þegar komið var að og þakskegg verslunarhússins tekið að sviðna. Einhver reykur náði inn í húsið og var það reykræst. Frekari skemmdir urðu ekki á húsinu en bíllinn er alónýtur eins og sjá má á myndinni.