Um 10.500 börn undir lágtekjumörkum

Um 10.500 börn á Íslandi bjuggu á heimilum undir lágtekjumörkum árið 2024, eða 12,6% barna í landinu. Hlutfallið hefur þó lækkað töluvert frá aldamótum þegar það var 16,5%. Börnum sem búa við varanlega fátækt hefur einnig fækkað lítillega og var hlutfall þeirra 5,1% árið 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um fátækt barna og stöðu barnafjölskyldna sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið og rædd á fundi ríkisstjórnarinnar fyrir helgi. Skýrslan er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 og byggir meðal annars á gögnum Hagstofu Íslands frá árunum 2000–2024. Staða barna hér á landi er í meginatriðum talin sambærileg við stöðuna í Noregi, Finnlandi og Danmörku.

Um 10.500 börn undir lágtekjumörkum - Skessuhorn