Myndin sýnir uppistöðulón undan jökulröndinni sem braut sér leið fram og rann um farveg Svartár í krikanum suðaustur af Hafursfelli í ágúst 2020. Ljósm. úr safni sem Arnar Bergþórsson tók.

Jörð skalf undir vestanverðum Langjökli

Klukkan 14:18 í dag varð skjálfti 4,2 að stærð í vestanverðum Langjökli og hafa nokkrir minni eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Jarðskjálftavirkni í og við Langjökul er algeng en síðast varð skjálfti af þessari stærð í júní 2022 og mældist sá 4,6 að stærð. Veðurstofu hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist víða á Suðvesturlandi.