Fréttir

true

Leitað á fjöllum og fé rekið til rétta – myndasyrpa

Göngur standa nú víða yfir á heiðum og afréttum landsins. Bændur og aðstoðarfólk þeirra halda til fjalla og framundan eru réttir. Um og eftir þessa helgi eru þannig á annan tug rétta á Vesturlandi. Fyrr í vikunni héldu gangnamenn á Arnarvatnsheiði og í gær héldu smalar áleiðis á Holtavörðuheiði. Framundan eru tveggja til þriggja daga…Lesa meira

true

Upplýsingaveita sveitarfélaga verður efld

Ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofa Íslands hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi þróun og rekstur Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Markmiðið er að bæta aðgengi að fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga og skapa betri grunn fyrir greiningar, samanburð og ákvarðanatöku. Upplýsingaveitan er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga þar sem haldið er utan um samræmdar fjárhagsupplýsingar sveitarfélaganna. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur undanfarin…Lesa meira

true

Grindvíkingar þökkuðu fyrir framlagið og faðmlagið

„Það er frá dýpstu hjartarótum sem ég segi: Takk fyrir þetta framlag og takk fyrir þetta faðmlag og takk fyrir að vera til staðar þegar samfélagið gekk í gegnum þetta áfall,“ sagði Pétur Markan, bæjarstjóri í Grindavík, þegar fulltrúar bæjarins, Rauða krossins á Íslandi og fyrirtækisins Rio Tinto komu saman í byrjun september í tilefni…Lesa meira

true

Íbúum fjölgaði í fjórum sveitarfélögum en fækkaði í öðrum fjórum

Frá 1. desember 2025 til 1. september síðastliðinn fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 115, en það jafngildir 0,6% fjölgun. Nú eru 18.625 búsettir í landshlutanum. Íbúum fjölgaði hlutfallslega mest í Snæfellsbæ á þessu tímabili, eða um 45 íbúa sem jafngildir 2,6% fjölgun. Íbúar þar eru nú 1.796. Á Akranesi fjölgaði um 56 íbúa á tímabilinu,…Lesa meira

true

Lægri þrýstingur á neysluvatni á Akranesi í kvöld

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn í vatnsveitu má búast við lægri þýstingi á köldu vatni á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 10. september, klukkan 21:00 til klukkan 01 í nótt. Veitur benda á að í eignum þar sem varmaskiptir er notaður til að hita neysluvatn getur lægri þrýstingur á kalda vatninu einnig valdið lægri þrýstingi á…Lesa meira

true

Unnur er áttunda björgunarskip Landsbjargar og fer til Patreksfjarðar

Nýjasta björgunarskip Landsbjargar er komið til landsins og verður innan tíðar siglt til heimahafnar þess á Patreksfirði. Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en alls verða 13 björgunarskip endurnýjuð í verkefninu. Á Patreksfirði tekur Unnur við af Verði II, sem var smíðaður árið 1987 og hefur þjónað þar frá árinu 2005. Nafn…Lesa meira

true

Íslenskar sjúkratryggingar ná ekki lengur til ferðamanna utan EES

Mikil breyting verður á tryggingarvernd Íslendinga á ferðalögum utan Evrópska efnahagssvæðisins um næstu áramót. Frá 1. janúar 2027 munu íslenskar sjúkratryggingar almennt ekki lengur taka þátt í kostnaði sem sjúkratryggðir verða fyrir vegna veikinda eða slysa í löndum utan EES. Jafnframt snertir þessi breyting þá fjölmörgu Íslendinga sem dvelja mánuðum saman ár hvert erlendis, t.d.…Lesa meira

true

Gönguferðir, tækni og endurnærandi ferðaþjónusta til umræðu

Opið rannsóknarerindi um gönguferðir, stafræna tækni og endurnærandi ferðaþjónustu á Íslandi verður haldið á morgun, föstudaginn 11. september kl. 10–12 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar verða kynntar rannsóknir á því hvernig tæknin hefur áhrif á upplifun fólks af gönguferðum og hvernig hugmyndir um endurnærandi ferðaþjónustu hafa þróast hér á landi. Julian Dietze mun fjalla um…Lesa meira

true

Brynja stígur fram sem lagahöfundur á Hádegistónum

Brynja Valdimarsdóttir tónskáld og söngkona kemur fram ásamt hljómsveit á Hádegistónum á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi í dag, fimmtudaginn 10. september. Tónleikarnir hefjast kl. 12:05 og standa í um hálfa klukkustund. Á efnisskránni verður blanda af frumsaminni tónlist Brynju og þekktum lögum í nýjum útsetningum. Tónlistin verður flutt í akústískum stíl með blúsívafi. Tónleikarnir marka…Lesa meira

true

Quarashi býður Skagamönnum í Bíóhöllina

Hljómsveitin Quarashi ætlar að þakka fyrir góðar móttökur á Akranesi með ókeypis tónleikum í Bíóhöllinni á morgun, föstudaginn 11. september. Tónleikarnir hefjast kl. 19 og verður ekkert aldurstakmark. Hljómsveitin hefur dvalið við æfingar í Bíóhöllinni undanfarnar vikur og segir velvild heimamanna hafa verið mikla. Af því tilefni ætlar Quarashi að stíga á svið og flytja…Lesa meira