Fréttir

true

Bæjarsjóður greiðir 80 milljónir vegna veikinda starfsfólks á hálfu ári

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar nýverið var til umræðu kostnaður vegna langtíma veikinda starfsfólks. Fram kemur að á sex mánaða tímabili, frá janúar til og með júní, hafi veikindaforföll starfsmanna kaupstaðarins kostað bæjarsjóð 80.350.345 krónur. „Bæjarráð áréttar að þegar hefur verið ráðist í tilteknar aðgerðir sem varða velferð starfsfólks svo sem upptöku svokallaðs Bradford kvarða, sérstakrar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um uppbyggingu gagnaverssvæðis á Akranesi

Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi. Eigendur félagsins munu í samstarfi við Akraneskaupstað leiða undirbúning og þróun verkefnisins. Gert er ráð fyrir að gagnaverssvæðið verði byggt upp í sjálfstæðum áföngum, sem teknir verða í notkun eftir því sem verkefninu…Lesa meira

true

Mikið fjör í upphafi annar í FSN

Skólastarf er komið á fullt í skólum landsins og Fjölbrautaskóli Snæfellinga er engin undantekning á því. Nemendur brugðu á leik miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn en þá stóð Nemendafélag FSN fyrir ratleik þar sem nýnemar létu ljós sitt skína. Allskonar þema var í hópunum og þar mátti sjá einhyrninga, kúreka, trúða og fleiri skondnar fígúrur. Ný…Lesa meira

true

Sveitarfélög samstíga um skammtímadvöl í Holti

Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa frá því í vor unnið að undirbúningi stofnunar félags um skammtímavistun fyrir börn með fötlun í húsnæði Þroskahjálpar að Holti í Borgarhreppi. Haldinn var samráðsfundur stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi ásamt sveitarstjórum 26. ágúst síðastliðinn til frekari undirbúnings, en málið hefur reyndar verið til umræðu á þessum vettvangi í nokkur ár, án…Lesa meira

true

Almenningi boðið að tína gulrætur og kartöflur

Sjálftínsla Jóns Björns Blöndal ungs bónda í Bæjarsveit í Borgarfirði hefst að nýju næstkomandi sunnudag frá kl. 13 til 16. Þar gefst fólki kostur á að mæta út á akur og taka sjálft upp kartöflur eða/og gulrætur beint úr jörðinni. Síðar í haust bætast gulrófur við. Kartöflurnar kosta 350 krónur kílóið, gulræturnar 750 krónur og…Lesa meira

true

Gengið um söguslóðir í Maríuhöfn

Ferðafélag Borgarfjarðar stendur fyrir gönguferð um söguslóðir við Maríuhöfn í Hvalfirði laugardaginn 5. september. Lagt verður af stað frá brúnni yfir Laxá í Kjós kl. 10 og er gangan tæplega tíu kílómetra löng og fremur létt, með lítilli hækkun. Gengið verður meðfram Laxá til sjávar og þaðan áfram út í Maríuhöfn, sem er forn verslunarstaður…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð sumarlesturs í dag

Safnahúsið í Borgarnesi býður öllum krökkum í heimsókn kl. 16 í dag þar sem fagnað verður frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár; „Gúndi geithafur og grasleitin mikla.“ Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir. Sérstakur gestur dagsins…Lesa meira

true

Kennir örugg vinnubrögð við notkun keðjusagar

Símenntun á Vesturlandi stendur fyrir námskeiði í vali, notkun og viðhaldi keðjusaga laugardaginn 12. september. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af trjáfellingum og vilja öðlast grunnþekkingu á öruggri notkun keðjusaga og réttum vinnubrögðum. Í fræðilegum hluta verður meðal annars fjallað um val á keðjusög, nauðsynlegan öryggis- og viðhaldsbúnaði og hvernig…Lesa meira

true

Áform um tæplega þrjú þúsund hektara skógrækt í Ljárskógum

Umhverfismatsskýrsla vegna umfangsmikilla skógræktaráforma í landi Ljárskóga í Dalabyggð hefur verið lögð fram til kynningar í Skipulagsgátt. Áformað er að planta skógi á allt að 2.780 hekturum og er frestur til að skila athugasemdum við skýrsluna til 13. október. Yggdrasill Carbon ehf. stendur að verkefninu í samstarfi við landeigendur. Heildarsvæðið sem verkefnið tekur til er…Lesa meira

true

Nýtt sundlaugardót gleður yngstu gestina í Búðardal

Gestir sundlaugarinnar í Búðardal geta nú spreytt sig á nýju og fjölbreyttu sundlaugardóti sem nýverið var tekið í notkun. Laugin var opnuð þá að nýju eftir gólfviðgerðir sem unnið hafði verið að í vikunni á undan. Stór sending barst Íþróttamiðstöð Dalabyggðar og leyndist þar ýmislegt sem ætti að gleðja yngri sundlaugargesti. Meðal annars flotdýna, kleinuhringur,…Lesa meira