
Jón Björn sáir gulrótum í raðir í skjóli við kornakur sinn og þannig verður uppskeran fín. Kartölfur verður einnig hægt að tína og gulrófur síðar í haust. Ljósm. mm
Almenningi boðið að tína gulrætur og kartöflur
Sjálftínsla Jóns Björns Blöndal ungs bónda í Bæjarsveit í Borgarfirði hefst að nýju næstkomandi sunnudag frá kl. 13 til 16. Þar gefst fólki kostur á að mæta út á akur og taka sjálft upp kartöflur eða/og gulrætur beint úr jörðinni. Síðar í haust bætast gulrófur við. Kartöflurnar kosta 350 krónur kílóið, gulræturnar 750 krónur og rófurnar 700 krónur kílóið. Vog verður á staðnum til að vigta uppskeruna en gestir eru beðnir um að koma með eigin ílát undir það sem þeir tína. Þeir sem hyggjast mæta eru hvattir til að skrá sig á viðburðinn hjá „Sjálftínslu Jóns Björns“ á Facebook, en þar fá þátttakendur senda nákvæma staðsetningu akursins.