
Bæjarsjóður greiðir 80 milljónir vegna veikinda starfsfólks á hálfu ári
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar nýverið var til umræðu kostnaður vegna langtíma veikinda starfsfólks. Fram kemur að á sex mánaða tímabili, frá janúar til og með júní, hafi veikindaforföll starfsmanna kaupstaðarins kostað bæjarsjóð 80.350.345 krónur.