Viljayfirlýsing undirrituð. F.v. Bjarni Ármannsson, Sturlaugur Haraldsson og Alexander Eiríksson. Ljósm. aðsend

Viljayfirlýsing um uppbyggingu gagnaverssvæðis á Akranesi

Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi. Eigendur félagsins munu í samstarfi við Akraneskaupstað leiða undirbúning og þróun verkefnisins. Gert er ráð fyrir að gagnaverssvæðið verði byggt upp í sjálfstæðum áföngum, sem teknir verða í notkun eftir því sem verkefninu vindur fram.