Húsnæði Þroskahjálpar í Holti. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Sveitarfélög samstíga um skammtímadvöl í Holti

Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa frá því í vor unnið að undirbúningi stofnunar félags um skammtímavistun fyrir börn með fötlun í húsnæði Þroskahjálpar að Holti í Borgarhreppi. Haldinn var samráðsfundur stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi ásamt sveitarstjórum 26. ágúst síðastliðinn til frekari undirbúnings, en málið hefur reyndar verið til umræðu á þessum vettvangi í nokkur ár, án þess að samstaða um það hafi náðst fyrr en nú. Stjórnendur sveitarfélaganna á Vesturlandi hafa nú samþykkt fyrir sitt leiti að hefja formlegt samstarf en með fyrirvara um samþykki sinna sveitarstjórna. Nú er hvert sveitarfélagið af öðru að afgreiða málið. Unnin hafa verið drög að rekstrarfyrirkomulagi úrræðisins í Holti. Þroskahjálp mun samkvæmt heimildum Skessuhorns ráðast í nauðsynlegar endurbætur á húsnæðinu svo það henti starfseminni. Félagið hefur selt húsnæði sitt á Gufuskálum og ætlar að nýta fjármuni til endurbóta í Holti. Sveitarfélögin taka höndum saman um reksturinn.