Fréttir

true

Framtíðarúrbætur á þjóðvegi 1 í Hvalfjarðarsveit til skoðunar

Oddviti og sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar áttu á föstudag fund með forstjóra Vegagerðarinnar, svæðisstjóra á Vestursvæði og sérfræðingum stofnunarinnar um samgöngumál í sveitarfélaginu. Fundurinn var haldinn að ósk Hvalfjarðarsveitar í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar frá því í júlí. Á fundinum kom fram að Vegagerðin er komin vel af stað með athugun á mögulegri framtíðarlegu og skipulagi þjóðvegar 1…Lesa meira

true

Vígsluafmæli Akraneskirkju og Safnaðarheimilisins Vinaminni

Við Skólabraut á Akranesi stendur stolt og prýði bæjarins, Akraneskirkja, sem reist var á árunum 1895-1896 og vígð 23. ágúst 1896 að viðstöddu fjölmenni. Næstkomandi sunnudag verður 130 ára vígsluafmælis kirkjunnar minnst en jafnframt eru fjörutíu ár síðan Safnaðarheimilið Vinaminni var tekið í notkun. Byggðin á Skaganum reis í kringum kirkjuna og þó götumyndin hafi…Lesa meira

true

Kristrún með hlustunarfund í kvöld

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heldur þessa dagana hlustunarfundi um hagsmuni Íslands vítt um land í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Verið hjartanlega velkomin í kvöldspjall með Kristrúnu í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit í Borgarfirði kl. 20:00 í kvöld, þriðjudaginn 18. ágúst. Forsætisráðherra vill hlusta á ólík sjónarmið og bjóða upp á heiðarlegt samtal um hagsmuni…Lesa meira

true

Telja villandi að hafa Akranes tilvísun í póstnúmeri

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að óska eftir því við Byggðastofnun að ritun póstnúmers 301 verði breytt úr „301 Akranes“ í „301 Hvalfjarðarsveit“. Póstnúmerið sjálft yrði áfram 301 og breytingin hefði engin áhrif á dreifingu eða aðra póstþjónustu. Hún snýr eingöngu að því staðarheiti sem tengt er póstnúmerinu í skráningum, heimilisföngum og…Lesa meira

true

Fjöldi erlendra ríkisborgara misjafn eftir sveitarfélögum

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara, sem eru með skráða búsetu hér á landi, eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 18. ágúst síðastliðinn. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 68,7% niður í 5,3% þó að jafnaði er hlutfallið um 20,2% þegar horft er til allra sveitarfélaga. Hæsta hlutfall…Lesa meira

true

Hringvegurinn lokaður við Borgarnes í kvöld

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 18. ágúst, er stefnt á að malbika Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum verður lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna…Lesa meira

true

Mikil umferð en góður undirbúningur skilaði árangri á almyrkvadaginn

Markaðsstofa Vesturlands hefur gefið út minnisblað um umferð á Vesturlandi dagana í kringum almyrkvann 12. ágúst. Gögnin sýna mjög mikla umferð á Snæfellsnesi og í Dölum og skýra umferðarbylgju eftir að almyrkvanum lauk. Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri Áfangastaða- og markaðssviðs SSV, segir niðurstöðurnar jafnframt benda til þess að góður undirbúningur og viðbrögð almennings og atvinnulífs…Lesa meira

true

Meistaramót Íslands 11–14 ára

Um liðna helgi hélt Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar Meistaramót Íslands í flokki 11–14 ára í Borgarnesi. Um 150 keppendur tóku þátt í mótinu víðs vegar að af landinu. „Mótið gekk vonum framar og var mikil stemning meðal keppenda, þjálfara og áhorfenda í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Einnig var afar skemmtilegt að geta nýtt sér nýju höllina bæði til…Lesa meira

true

Bandero dregið til hafnar á Akranesi

Seint í gærkvöldi var Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, dregið frá Reykjavík til hafnar á Akranesi. Ástæða þess var sú að rýma þurfti til í höfninni í Reykjavík fyrir sjö herskip sem væntanleg eru þangað til að taka þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi. Bandero var dregið yfir flóann þar sem ekki má sigla skipinu. Í kjölfar ógnandi…Lesa meira

true

Árleg kaffisala framundan í Ölveri

Hin árlega kaffisala í sumarbúðum KFUM og KFUK í Ölveri í Hvalfjarðarsveit verður núna á sunnudaginn 23. ágúst milli klukkan 13:00 og 17.00. Salan er rómuð fyrir vandað kaffihlaðborð þar sem borðin svigna undan krásum. Gott að njóta í fallegu umhverfi. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til uppbyggingar sumarbúðastarfsins. Allir velkomnir! -fréttatilkynningLesa meira