Á ferð um Snæfellsnes, þó ekki á almyrkvadaginn. Ljósm. úr safni

Mikil umferð en góður undirbúningur skilaði árangri á almyrkvadaginn

Markaðsstofa Vesturlands hefur gefið út minnisblað um umferð á Vesturlandi dagana í kringum almyrkvann 12. ágúst. Gögnin sýna mjög mikla umferð á Snæfellsnesi og í Dölum og skýra umferðarbylgju eftir að almyrkvanum lauk. Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri Áfangastaða- og markaðssviðs SSV, segir niðurstöðurnar jafnframt benda til þess að góður undirbúningur og viðbrögð almennings og atvinnulífs hafi skilað árangri.