Brúin yfir Laxá. Ljósm. mm

Framtíðarúrbætur á þjóðvegi 1 í Hvalfjarðarsveit til skoðunar

Oddviti og sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar áttu á föstudag fund með forstjóra Vegagerðarinnar, svæðisstjóra á Vestursvæði og sérfræðingum stofnunarinnar um samgöngumál í sveitarfélaginu. Fundurinn var haldinn að ósk Hvalfjarðarsveitar í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar frá því í júlí.