
Hringvegurinn lokaður við Borgarnes í kvöld
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 18. ágúst, er stefnt á að malbika Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum verður lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas.
Þetta er þriðja en jafnframt síðasta kvöldið sem framkvæmdir standa yfir við norðurenda brúarinnar. Á sunnudagskvöld var vegurinn fræstur, en malbikað í gær og síðustu nótt og svo aftur í kvöld.