
Telja villandi að hafa Akranes tilvísun í póstnúmeri
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að óska eftir því við Byggðastofnun að ritun póstnúmers 301 verði breytt úr „301 Akranes“ í „301 Hvalfjarðarsveit“. Póstnúmerið sjálft yrði áfram 301 og breytingin hefði engin áhrif á dreifingu eða aðra póstþjónustu. Hún snýr eingöngu að því staðarheiti sem tengt er póstnúmerinu í skráningum, heimilisföngum og opinberum gögnum.