Vinaminni og Akraneskirkja. Ljósm. mm

Vígsluafmæli Akraneskirkju og Safnaðarheimilisins Vinaminni

Við Skólabraut á Akranesi stendur stolt og prýði bæjarins, Akraneskirkja, sem reist var á árunum 1895-1896 og vígð 23. ágúst 1896 að viðstöddu fjölmenni. Næstkomandi sunnudag verður 130 ára vígsluafmælis kirkjunnar minnst en jafnframt eru fjörutíu ár síðan Safnaðarheimilið Vinaminni var tekið í notkun.

Byggðin á Skaganum reis í kringum kirkjuna og þó götumyndin hafi tekið þó nokkrum breytingum á rúmri öld stendur kirkjan óhögguð. Yfirsmiður og hönnuður kirkjunnar var Guðmundur Jakobsson frá Sauðafelli í Dölum. Við vígsluathöfnina voru 450 manns viðstaddir en það var sóknarprestur Akurnesinga og prófastur, sr. Jón A. Sveinsson, sem annaðist vígsluna í fjarveru biskups Íslands, en óveður hamlaði för hans frá Reykjavík.

Kirkjan fékk upplyftingu árið 1966 þegar skrúðhús var byggt við hana og og kirkjan lengd um 2,7 metra. Fáeinum árum síðar var kirkjan máluð að innan af Grétu Björnsson listmálara og manni hennar, Jóni Björnssyni. Skipt var um kirkjuturn í byrjun nýrrar aldar og þá hefur kirkjan fengið mikið viðhald á síðustu árum, að innan og utan, og er enn tákn og bæjarprýði Akraness.

130 ára kirkja

Sunnudaginn 23. ágúst minnumst við þess í hátíðarmessu að 130 ár eru frá því að kirkjan var vígð. Prestar kirkjunnar þjóna saman ásamt organista, kór og meðhjálpara Akraneskirkju. Að messu lokinni verður messukaffi í Safnaðarheimilinu Vinaminni sem einnig á stórafmæli, en þann 24. ágúst eru 40 ár liðin frá því það var tekið í notkun.

Akraneskirkja er mikið notuð, yfir 20 þúsund kirkjugestir sækja messur og aðrar athafnir á hverju ári. Messað er alla sunnudaga frá ágúst til júníloka, auk annrra hátíðisdaga, sunnudagaskóli starfar yfir veturinn og sömuleiðis eru kyrrðarstundir á miðvikudögum. Á annað hundrað athafna eru í kirkjunni á hverju ári.

Fertugt safnaðarheimili

Safnaðarheimilið Vinaminni var tekið í notkun árið 1986. Húsið teiknaði Magnús H. Ólafsson arkitekt. Ýmis listaverk prýða Vinaminni, meðal annars eftir Leif Breiðfjörð. Í Vinaminni eru skrifstofur presta, organista og skrifstofustjóra, auk safnaðarsalar sem mikið er notaður í safnaðarstarfinu, það er barnastarfi, eldri borgarastarfi og fermingarfræðslu, auk þess fara kóræfingar þar fram. Í Vinaminni eru einnig flestar erfidrykkjur og salurinn einnig leigður út fyrir veislur og tónleikahald. Álíka margir sækja samkomur eða starfið í Vinaminni og í kirkjuna eða um 20 þúsund árlega.Fátt hefur breyst í safnaðarheimilinu á þessum fjórum áratugum og þörf er á að endurnýja ýmislegt, einkum þó stólana. Af því tilefni hefur sóknarnefndin stofnað svokallaðan Stólasjóð Vinaminnis, og er sóknarbörnum og öðrum velunnurum boðið að styrkja safnaðarheimilið sitt svo endurnýja megi stólana og annað sem þarfnast lagfæringar eða endurnýjunar. Nánari upplýsingar um sjóðinn, kirkjuna og safnaðarstarfið má nálgast á akraneskirkja.is.

Verið velkomin til messu og kirkjukaffis sunnudaginn 23. ágúst kl. 11. Kór Akraneskirkju syngur við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar organista, Hrefna Berg leikur á fiðlu. Meðhjálpari er Helga Sesselja Ásgeirsdóttir. Prestarnir sr Ólöf Margrét Snorradóttir og sr Þóra Björg Sigurðardóttir þjóna. Sr Þráinn Haraldsson sóknarprestur prédikar.

-fréttatilkynning