Fréttir

true

Víkingur Ólafsvík gerði jafntefli við Fjölni

Víkingur Ólafsvík og Fjölnir skildu jöfn, 2:2, í 15. umferð 2. deildar karla í síðustu viku. Með stiginu er Víkingur áfram í fimmta sæti deildarinnar með 22 stig, jafnmörg og Fjölnir í fjórða sæti. Fjölnir komst yfir á 25. mínútu þegar Bjarni Þór Hafstein skoraði og var staðan 1:0 í hálfleik. Víkingar jöfnuðu snemma í…Lesa meira

true

Rafræn sundkort tekin í notkun í Jaðarsbakkalaug

Rafræn sundkort voru tekin í notkun í Jaðarsbakkalaug á Akranesi 28. júlí sl. Með breytingunni verður óþarfi fyrir eigendur árskorta og klippikorta að bera kort með sér, en þeir skrá sig nú inn með kennitölu í afgreiðslukerfi sundlaugarinnar. Eigendur sundkorta eru hvattir til að skila eldri plastkortum í næstu heimsókn. Starfsfólk hefur þegar forskráð þá…Lesa meira

true

Hólmarar á meðal keppenda á Wacken Metal Battle

Hljómsveitin SÓT steig á svið á alþjóðlegu Wacken Metal Battle-keppninni í Þýskalandi í síðustu viku og kom þar fram fyrir hönd Íslands. Sveitin tryggði sér þátttökurétt með sigri í íslensku undankeppninni fyrr á árinu. SÓT skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari, auk Arnar Smára Sigurðssonar trommuleikara, Arons Freys Ívarssonar söngvara og…Lesa meira

true

Hátíðarsvæðið á Hellissandi að taka á sig mynd

Þessa dagana er unnið hörðum höndum við að koma upp aðstöðu fyrir gesti sem væntanlegir eru á Sólmyrkvahátíðina á Hellissandi. Vegna sólmyrkvans 12. ágúst er búist við fjölda gesta á Hellissand og víðar í Snæfellsbæ. Tónlistarhátíðin Eclipse mun auk þess standa yfir dagana 11. til 15. ágúst. Boðið verður upp á tónleika og ýmsir viðburðir…Lesa meira

true

Skrifstofan opin að nýju

Eftir stutt sumarleyfi hefur skrifstofa Skessuhorns nú verið opnuð að nýju og starfsfólk komið ferskt til starfa. Nú hefjast fréttaskrif aftur af krafti, bæði á vef og í blað. Næsta tölublað verður gefið út miðvikudaginn 12. ágúst. Minnt er á tölvupóst ritstjórnar: skessuhorn@skessuhorn.is en auglýsingapantanir berast á auglysingar@skessuhorn.isLesa meira

true

Jón Þór heiðraður af uppeldisfélaginu

Fyrir leik ÍA og Stjörnunnar undir lok júlí nýtti Knattspyrnufélag ÍA tækifærið til að þakka Jóni Þór Haukssyni fyrir hans mikla og mikilvæga framlag til ÍA í gegnum árin. „Jón Þór hefur komið víða við hjá félaginu. Sem leikmaður, þjálfari yngri flokka, yfirþjálfari yngri flokka, aðstoðarþjálfari og tók síðar við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Þá…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð um komandi helgi

Stefnt er á notalega og fjölskylduvæna hátíð á Hvanneyri um næstu helgi, dagana 7. til 8. ágúst. Hefð er fyrir því að hátíðin sé haldin á þessum tíma árs og hefur dagskráin mótast á liðnum árum og öll áhersla lögð á þátttöku allra í fjölskyldunni. Auk íbúa úr héraði er mikið um að fyrrum nemendur…Lesa meira

true

Héldu jöfnu á móti Íslandsmeisturunum

Það var fjörugur leikur í Bestu deild karla í fótbolta þegar Íslandsmeistarar Víking sóttu Skagamenn heim í gær. Aðstæður voru með besta móti; hlýtt en hálfskýjað. Í upphafi leiks voru það Skagamenn sem fengu bestu færin. Viktor Jónsson slapp einn í gegn um vörn gestanna strax á fimmtu mínútu en skaut yfir markið. Markús Páll…Lesa meira

true

Strandveiðitímabilinu lýkur senn – mögulega þrír veiðidagar eftir

Nú sér fyrir endann á strandveiðum sumarsins. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu síðastliðinn föstudag voru 766 tonn eftir af kvóta til strandveiða þetta árið fiskveiðiárið. Nokkru færri bátar voru á strandveiðum í júlí en voru í júní, eða 708 bátar á móti 771 í júní.  Frá byrjun strandveiða í ár hafa 789 bátar tekið þátt í…Lesa meira

true

Ómannaðar bakvaktir dýralækna

„Þrátt fyrir tilraunir hefur enn ekki tekist að tryggja mönnun bakvakta dýralækna á fleiri vaktsvæðum í ágúst,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Á vaktsvæði 2, sem nær yfir Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit, eru ómannaðar bakvaktir dýralækna dagana 4., 5., 6., 9., 22., 23. og 31. ágúst. „Matvælastofnun harmar þessa stöðu og vill upplýsa dýraeigendur tímanlega…Lesa meira