Gísli Eyjólfsson fagnar hér marki sínu en hann fékk síðar að sjá rautt spjald fyrir að setja hausinn í einn andstæðinga sinn. Ljósm. fotbolti.net

Héldu jöfnu á móti Íslandsmeisturunum

Það var fjörugur leikur í Bestu deild karla í fótbolta þegar Íslandsmeistarar Víking sóttu Skagamenn heim í gær. Aðstæður voru með besta móti; hlýtt en hálfskýjað. Í upphafi leiks voru það Skagamenn sem fengu bestu færin. Viktor Jónsson slapp einn í gegn um vörn gestanna strax á fimmtu mínútu en skaut yfir markið. Markús Páll Ellertsson var síðan hársbreidd frá því að koma heimamönnum yfir þegar skot hans hafnaði í stönginni eftir góða sókn. Fyrsta markið leit svo dagsins ljós á 38. mínútu. Ögmundur Kristinsson sendi boltann fram völlinn á Gylfa Þór Sigurðsson sem fylgdist ekki nægilega vel með. Skagamenn unnu boltann, Haukur Andri Haraldsson fann Gísla Laxdal Unnarsson og hann kláraði vel fram hjá Ögmundi í Víkingsmarkinu. Það tók Víkinga þó aðeins nokkrar mínútur að svara fyrir sig. Erik Tobias Sandberg varði þá skot Ármanns Inga Finnbogasonar og vítaspyrna var dæmd. Helgi Guðjónsson steig á punktinn og skoraði af öryggi með skoti á mitt markið.