Jón Þór Hauksson. Ljósm. kfia

Jón Þór heiðraður af uppeldisfélaginu

Fyrir leik ÍA og Stjörnunnar undir lok júlí nýtti Knattspyrnufélag ÍA tækifærið til að þakka Jóni Þór Haukssyni fyrir hans mikla og mikilvæga framlag til ÍA í gegnum árin. „Jón Þór hefur komið víða við hjá félaginu. Sem leikmaður, þjálfari yngri flokka, yfirþjálfari yngri flokka, aðstoðarþjálfari og tók síðar við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Þá hefur hann ávallt verið öflugur félagsmaður og sannur Skagamaður sem ber hag ÍA fyrir brjósti,“ segir í tilkynningu frá KFÍA. Honum var færð lítil gjöf sem þakklætisvottur fyrir störf hans í þágu félagsins.