
Þannig leit hátíðarsvæðið út um helgina. Ljósm. af
Hátíðarsvæðið á Hellissandi að taka á sig mynd
Þessa dagana er unnið hörðum höndum við að koma upp aðstöðu fyrir gesti sem væntanlegir eru á Sólmyrkvahátíðina á Hellissandi. Vegna sólmyrkvans 12. ágúst er búist við fjölda gesta á Hellissand og víðar í Snæfellsbæ. Tónlistarhátíðin Eclipse mun auk þess standa yfir dagana 11. til 15. ágúst. Boðið verður upp á tónleika og ýmsir viðburðir verða á svæðinu. Um 1200 svokölluð indíánatjöld verða sett upp en auk þess verða lúxustjöld fyrir þá gesti sem vilja láta fara vel um sig.