
SÓT. Ljósm. Sveitarfélagið Stykkishólmur
Hólmarar á meðal keppenda á Wacken Metal Battle
Hljómsveitin SÓT steig á svið á alþjóðlegu Wacken Metal Battle-keppninni í Þýskalandi í síðustu viku og kom þar fram fyrir hönd Íslands. Sveitin tryggði sér þátttökurétt með sigri í íslensku undankeppninni fyrr á árinu. SÓT skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari, auk Arnar Smára Sigurðssonar trommuleikara, Arons Freys Ívarssonar söngvara og Daníels Hrafns Ingvarssonar gítarleikara. Keppnin fer fram samhliða Wacken Open Air, einni stærstu þungarokkshátíð heims.