
Pétur F Karlsson, sem jafnan er kallaður Fíi Færeyingur, er að eigin sögn að hætta öllu sem tilheyrir sjómennsku. Hann hefur reyndar sagt þessa setningu undanfarin 50 ár eða svo. Hann er þó enn að og áhuginn óslökkvandi. Með honum á myndinni er Guðmundur Björn Steindórsson en þeir róa á Diddu SH. Texti og myndir: AF
Strandveiðitímabilinu lýkur senn – mögulega þrír veiðidagar eftir
Nú sér fyrir endann á strandveiðum sumarsins. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu síðastliðinn föstudag voru 766 tonn eftir af kvóta til strandveiða þetta árið fiskveiðiárið. Nokkru færri bátar voru á strandveiðum í júlí en voru í júní, eða 708 bátar á móti 771 í júní. Frá byrjun strandveiða í ár hafa 789 bátar tekið þátt í veiðunum. Meðalþorskafli á dag er 257 tonn. Í maí veiddu bátarnir 264 tonn að jafnaði, í júní 289 tonn og 220 tonn í júlí. Í júlí náðu 175 bátar fullum dagsskammti eða 12 dögum en í júní voru 382 sem náðu því takmarki.