Hvanneyrarhátíð um komandi helgi

Stefnt er á notalega og fjölskylduvæna hátíð á Hvanneyri um næstu helgi, dagana 7. til 8. ágúst. Hefð er fyrir því að hátíðin sé haldin á þessum tíma árs og hefur dagskráin mótast á liðnum árum og öll áhersla lögð á þátttöku allra í fjölskyldunni. Auk íbúa úr héraði er mikið um að fyrrum nemendur bændaskólans mæti og endurnýi kynnin.