
Ómannaðar bakvaktir dýralækna
„Þrátt fyrir tilraunir hefur enn ekki tekist að tryggja mönnun bakvakta dýralækna á fleiri vaktsvæðum í ágúst,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Á vaktsvæði 2, sem nær yfir Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit, eru ómannaðar bakvaktir dýralækna dagana 4., 5., 6., 9., 22., 23. og 31. ágúst.
„Matvælastofnun harmar þessa stöðu og vill upplýsa dýraeigendur tímanlega svo þeir geti búið sig undir þessa skertu þjónustu. Eigendur dýra sem þurfa á þjónustu dýralæknis að halda á þessum dögum er bent á að hafa samband við þá dýralækna sem hafa þjónustað þá áður eða aðra almennt starfandi dýralækna. Unnið er að því að finna lausnir á mönnun vakta framangreindra daga og nánar kynnt ef breytingar verða á stöðunni.“