Rafræn sundkort tekin í notkun í Jaðarsbakkalaug

Rafræn sundkort voru tekin í notkun í Jaðarsbakkalaug á Akranesi 28. júlí sl. Með breytingunni verður óþarfi fyrir eigendur árskorta og klippikorta að bera kort með sér, en þeir skrá sig nú inn með kennitölu í afgreiðslukerfi sundlaugarinnar. Eigendur sundkorta eru hvattir til að skila eldri plastkortum í næstu heimsókn. Starfsfólk hefur þegar forskráð þá gesti sem eru með virk sundkort og nota Abler. Gestir World Class sem nýta sér sundaðstöðu halda áfram að láta vita í afgreiðslu og sýna staðfestingu á gildri áskrift.