Fréttir

true

Ekið á fé

Í liðinni viku voru fimm atvik tilkynnt til Lögreglunnar á Vesturlandi þar sem ekið hafði verið á lömb eða kindur á vegum. Nú eru bændur búnir að keyra fé á fjall og er ástæða til að hvetja ökumenn til að sýna sérstaka aðgæslu í þeim tilfellum sem fjallgirðingar eru ekki að gera sitt gagn.Lesa meira

true

Fram hafði betur gegn ÍA

Fram vann öruggan 2-0 sigur á ÍA þegar liðin mættust á Elkemvellinum á Akranesi í gærkvöldi. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk gestanna í fyrri hálfleik og lagði grunninn að verðskulduðum sigri. Framarar voru sterkari aðilinn frá upphafi og komust yfir á 20. mínútu þegar Atli Þór lauk vel útfærðri sókn með hnitmiðuðu skoti fram…Lesa meira

true

Hvalveiðum ógnað

Síðdegis í gær kom hvalveiðiskipið Hvalur 9 með tvo hvali að landi í Hvalfirði. Það sem af er vertíðinni, sem hófst 19. júní, hafa níu langreyðar veiðst. Sjálfar veiðarnar og vinnslan hafa gengið vel. Hins vegar er veruleg truflun af aðgerðum Paul Watson og félaga hans sem sigldu skipinu Bandero inn í íslenska efnahagslögsögu um…Lesa meira

true

Auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Grundarfjarðarbær hefur auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins árið 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem viðurkenningarnar eru veittar en markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til góðrar umhirðu og fegrunar á umhverfi sínu. Veittar verða viðurkenningar í tveimur flokkum. Annars vegar verður valið Heimili ársins 2026 fyrir snyrtilegasta hús og garð og hins…Lesa meira

true

Fjölbreyttir Írskir dagar að hefjast

Bæjarhátíðin Írskir dagar verður haldin á Akranesi þessa vikuna í 27. sinn, en dagskráin hefst í dag og nær hápunkti um helgina. Í henni má finna eitthvað við allra hæfi, allt frá tónleikum og íþróttaleikjum yfir í jóga, möntrusöng og karnival. Auk þess verða árlegir viðburðir á borð við götugrill, brekkusöng, tónlistarhátíðina Lopapeysuna og keppnina…Lesa meira

true

Átt þú bát sem flýtur en ekki sekkur?

Báta- og prammarallý verður á dagskrá bæjarhátíðarinnar Heim í Búðardal í næstu viku þegar þátttakendur láta heimagerða báta og pramma sína spreyta sig á siglingu frá rampinum yfir að flotbryggjunni. Rallýið fer fram laugardaginn 4. júlí klukkan 15 og er mæting keppenda klukkan 14:45. Guðmundur Guðbjörnsson, formaður Björgunarsveitarinnar Óskar, segist hlakka til að sjá þau…Lesa meira

true

Níu verkefni hlutu Öndvegisstyrk frá SSV

Úthlutunarnefnd Sóknaráætlunar Vesturlands fundaði síðastliðinn föstudag vegna úthlutunar Öndvegisstyrkja. Í byrjun árs var ákveðið að tillögu fjárlaganefndar að landshlutasamtökin myndu taka að sér að úthluta fjármagni til ýmissa verkefna sem áður var úthlutað af nefndinni sjálfri. Í kjölfarið var samþykkt að deila þeim 280 milljónum króna sem runnu til landshlutasamtakanna jafnt á milli allra þannig…Lesa meira

true

Síðari hálfleikur Bestu deildar karla að hefjast

Fyrri hluta Íslandsmóts karla lauk í liðinni viku. Fyrsti leikur síðari hluta Bestu deildarinnar hefst í kvöld með leik ÍA og Fram á Elkem vellinum á Akranesi kl. 19-15. Víkingur hefur unnið alla leiki sína í deildinni til þessa og trónir á toppi deildarinnar með 37 stig, en annað sætið vermir KR með 28 stig.…Lesa meira

true

Stuðningur vegna kornvinnslu

Atvinnuvegaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í kornrækt. Stuðningur er veittur til fjárfestinga í kornþurrkunarstöðvum vegna nýframkvæmda, stækkunar og endurbóta á stöðvum sem þegar eru í rekstri. Einnig fyrir sérhæfðar korngeymslur, sérhæfð flutningatæki fyrir korn og kornþreskivélar.Lesa meira

true

Sumarmessur í Reykholtsprestakalli

Reykholtsprestakall í Borgarfirði er með sumarmessur í gangi allar helgar út ágústmánuð. Auk stærri kirkna eru messur haldnar í litlu kirkjunum sem alla jafnan er ekki mikið um að vera í. Í gær var messað í Reykholtskirkju en síðdegis í litlu kirkjunni í Stóra-Ási í Hálsasveit. Þar messaði sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir sókarprestur og prófastur.…Lesa meira