
Fjölbreyttir Írskir dagar að hefjast
Bæjarhátíðin Írskir dagar verður haldin á Akranesi þessa vikuna í 27. sinn, en dagskráin hefst í dag og nær hápunkti um helgina. Í henni má finna eitthvað við allra hæfi, allt frá tónleikum og íþróttaleikjum yfir í jóga, möntrusöng og karnival. Auk þess verða árlegir viðburðir á borð við götugrill, brekkusöng, tónlistarhátíðina Lopapeysuna og keppnina um rauðhærðasta Íslendinginn. Þess má geta að frá þriðjudegi til laugardags verða tónleikar á hverju kvöldi á Lopapeysusvæðinu.