Hvalskurður á plani. Ljósm. úr safni/mm

Hvalveiðum ógnað

Síðdegis í gær kom hvalveiðiskipið Hvalur 9 með tvo hvali að landi í Hvalfirði. Það sem af er vertíðinni, sem hófst 19. júní, hafa níu langreyðar veiðst. Sjálfar veiðarnar og vinnslan hafa gengið vel. Hins vegar er veruleg truflun af aðgerðum Paul Watson og félaga hans sem sigldu skipinu Bandero inn í íslenska efnahagslögsögu um helgina. Landhelgisgæslan fylgist grannt með ferðum skipsins og athöfnum áhafnar þess, en yfirlýst stefna samtaka Paul Watson er að stöðva veiðarnar með öllum ráðum.