
Séra María Guðrúnar Ágústsdóttir messar í Stóra-Áskirkju. Ljósmyndir; Kolla Ingvars
Sumarmessur í Reykholtsprestakalli
Reykholtsprestakall í Borgarfirði er með sumarmessur í gangi allar helgar út ágústmánuð. Auk stærri kirkna eru messur haldnar í litlu kirkjunum sem alla jafnan er ekki mikið um að vera í. Í gær var messað í Reykholtskirkju en síðdegis í litlu kirkjunni í Stóra-Ási í Hálsasveit. Þar messaði sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir sókarprestur og prófastur. Kirkjugestir tóku undir í söng og svo sungu börn ættuð frá Stóra Ási sálma og lög. Góð mæting var í messuna og hátíðleg stund, en eftir það var gestum boðið í kirkjukaffi í Stóra Ási.