Fé í vegkanti. Ljósm. úr safni/mm

Ekið á fé

Í liðinni viku voru fimm atvik tilkynnt til Lögreglunnar á Vesturlandi þar sem ekið hafði verið á lömb eða kindur á vegum. Nú eru bændur búnir að keyra fé á fjall og er ástæða til að hvetja ökumenn til að sýna sérstaka aðgæslu í þeim tilfellum sem fjallgirðingar eru ekki að gera sitt gagn.