
Níu verkefni hlutu Öndvegisstyrk frá SSV
Úthlutunarnefnd Sóknaráætlunar Vesturlands fundaði síðastliðinn föstudag vegna úthlutunar Öndvegisstyrkja. Í byrjun árs var ákveðið að tillögu fjárlaganefndar að landshlutasamtökin myndu taka að sér að úthluta fjármagni til ýmissa verkefna sem áður var úthlutað af nefndinni sjálfri. Í kjölfarið var samþykkt að deila þeim 280 milljónum króna sem runnu til landshlutasamtakanna jafnt á milli allra þannig að hver og einn landshluti fékk 35 m.kr. Til viðbótar við það var bætt við tíu milljónum sem ekki var úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í janúar og voru því 45 milljónir til úthlutunar á Vesturlandi. Hugmyndin með öndvegisstyrkjum var að úthluta færri en hærri styrkjum og úthlutunarreglur voru nokkuð rýmri en úr Uppbyggingasjóði. Til dæmis var mögulegt að sækja um styrk til stofnfjárfestinga í búnaði og aðstöðu.