Átt þú bát sem flýtur en ekki sekkur?

Báta- og prammarallý verður á dagskrá bæjarhátíðarinnar Heim í Búðardal í næstu viku þegar þátttakendur láta heimagerða báta og pramma sína spreyta sig á siglingu frá rampinum yfir að flotbryggjunni. Rallýið fer fram laugardaginn 4. júlí klukkan 15 og er mæting keppenda klukkan 14:45. Guðmundur Guðbjörnsson, formaður Björgunarsveitarinnar Óskar, segist hlakka til að sjá þau fjölbreyttu farartæki sem börn og fullorðnir hafa verið önnum kafin við að smíða og skreyta fyrir tilefnið. „Síðast þegar við héldum bátarallýið komu bátarnir og prammarnir bæði skemmtilega skreyttir og vel útfærðir. Það var ekki auðvelt fyrir dómnefndina að velja sigurvegara og ég reikna með að það verði ekki síður erfitt í ár. Dalamenn eru einstaklega skapandi og skemmtilegt fólk,“ segir Guðmundur.