Síðari hálfleikur Bestu deildar karla að hefjast

Fyrri hluta Íslandsmóts karla lauk í liðinni viku. Fyrsti leikur síðari hluta Bestu deildarinnar hefst í kvöld með leik ÍA og Fram á Elkem vellinum á Akranesi kl. 19-15.

Víkingur hefur unnið alla leiki sína í deildinni til þessa og trónir á toppi deildarinnar með 37 stig, en annað sætið vermir KR með 28 stig. Í þriðja sæti er svo knattspyrnufélagið Fram með 23 stig, en þeir hafa verið að sækja í sig veðrið í síðustu leikjum. ÍA er fyrir miðri deild með 15 stig.

Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í knattspyrnunni og má búast við harðri keppni þegar seinni hluti Íslandsmótsins fer af stað enda stutt á milli liða á stigatöflunni og hver tapleikur getur verið fljótur að breyta stöðunni í deildinni.