
Svipmynd úr leiknum. Ljósm. Jón Gautur Foto
Fram hafði betur gegn ÍA
Fram vann öruggan 2-0 sigur á ÍA þegar liðin mættust á Elkemvellinum á Akranesi í gærkvöldi. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk gestanna í fyrri hálfleik og lagði grunninn að verðskulduðum sigri. Framarar voru sterkari aðilinn frá upphafi og komust yfir á 20. mínútu þegar Atli Þór lauk vel útfærðri sókn með hnitmiðuðu skoti fram hjá Jóni Sölva Símonarsyni í markinu. Þremur mínútum síðar bætti hann við öðru marki úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Róberti Haukssyni inni í vítateig.