Fréttir

true

Brákarhátíð í Borgarnesi gekk vel

Brákarhátíð var haldin í Borgarnesi frá fimmtudegi til laugardags. Það eru Hollvinasamtök Borgarness sem skipuleggja hátíðina en um er að ræða sannkallaða fjölskyldu- og bæjarhátíð þar sem frítt var inn á alla skipulagða viðburði. Veðrið var skaplegt; lítil sól, dumbungur en oftast þurrt. Inn í dagskrána var líkt og á síðasta ári fléttað utan- og…Lesa meira

true

Nýtt starfsmannahús í Fíflholtum

Undanfarið hefur verið unnið að endurnýjun starfsmannahúss í Fíflholtum á Mýrum. Sorpurðun Vesturlands, sem rekur urðunarstaðinn í Fíflholtum, samdi við Trésmiðjuna Akur á Akranesi um byggingu á nýju húsi sem gegnir hlutverki starfsmannahúss en er einnig þjónustuhús fyrir viðskiptavini urðunarstaðarins. Húsið var byggt við verksmiðju Akurs á Akranesi og flutt í Fíflholt þar sem það…Lesa meira

true

Tilraunahátíðin Leir eða leðja á Eiríksstöðum

Á Eiríksstöðum í Haukadal mætir gesti glaðhlakkalegt fólk í vinnugöllum í pásu utan við langhús Eiríks rauða. Þetta eru eigendur rekstrarfélags Eiríksstaða; þau Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Reynir Guðbrandsson og Atli Freyr Guðmundsson. En hvað skyldi standa til? „Við erum í árvissum hátíðarundirbúningi, en um næstu helgi stendur til að brasa með leir hérna á Eiríksstöðum. Það…Lesa meira

true

Við öllu búnir fyrir almyrkva á sólu

Undirbúningi í tengslum við almyrkvann miðvikudaginn 12. ágúst miðar almennt vel og hann er á mörgum stöðum á lokametrunum. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans. Minnisblaðið var lagt fram á fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku. Sem fyrr eru það tilmæli stjórnvalda að fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni…Lesa meira

true

Hálendisvakt björgunarsveitanna er hafin

Síðastliðinn fimmtudag hófst Hálendisvakt sumarsins hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Líkt og undanfarin 20 ár er það Olís sem styrkir verkefnið. Það voru félagar í björgunarsveitinni Súlum á Akureyri sem fengu fyrsta útkall sumarsins á leið suður Kjalveg, þegar óskað var eftir að athuga með ferðamann í Klakkskála suður af Kerlingafjöllum. Björgunarsveitin Eyvindur var einnig kölluð til.…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna hefst um næstu helgi

Nú hefur dagskrá Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal tekið á sig lokamynd. Í henni má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið sem fram fer dagana 5.–11. júlí. Á setningarhátíð á fimmtudagskvöldinu 9. júlí verður hópreið og þá mætir Karlakórinn Heimir á athöfnina eins og hefð er fyrir í Skagafirði. Sunnudaginn 5. júlí hefst…Lesa meira

true

Náttúrubarnahátíð á Ströndum helgina 10.-12. júlí

Það verður líf og fjör á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum helgina 10.-12. júlí en þá verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin í tíunda sinn. Hátíðin er fjölskylduhátíð sem fer að mestu fram utandyra og einkennist dagskráin af fjölbreyttri útivist, náttúrutúlkun, tónlist, fróðleik og fjöri fyrir náttúrubörn á öllum aldri. Líkt og undanfarin ár er ókeypis…Lesa meira

true

Sjóslysasaga Íslands síðustu 150 ára sett upp á Miðbakka

Faxaflóahafnir hafa opnað nýja útisýningu á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík þar sem sjónum er beint að þróun sjóslysa við Íslandsstrendur síðustu 150 árin. Sýningin, Sjóslys við Ísland, byggir á viðamikilli heimilda- og rannsóknarvinnu og dregur upp mynd af skipum yfir 12 tonnum sem fórust eða skemmdust svo mikið að þau urðu ekki sjófær…Lesa meira

true

Sósíalistaflokkurinn gagnrýnir ráðherra fyrir afstöðu til Rússlands og Ísraels

Sósíalistaflokkur Íslands samþykkti ályktun á aðalfundi sínum þar sem afstaða ríkisstjórnarinnar gagnvart Rússlandi og Ísrael er harðlega gagnrýnd. Í ályktuninni eru utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra sakaðir um tvískinnung í málflutningi sínum. Í ályktun flokksins segir að ráðherrarnir hafi hvatt til ferðatakmarkana gagnvart rússneskum almenningi en á sama tíma ekki gert athugasemdir við komu ísraelskra ferðamanna til…Lesa meira

true

Yfir 8.700 umsóknir bárust Háskóla Íslands

Rúmlega 8.700 umsóknir bárust um grunn- og framhaldsnám við Háskóla Íslands fyrir komandi skólaár. Heildarfjöldi umsókna dregst lítillega saman milli ára vegna fækkunar erlendra umsækjenda, en innlendum umsóknum fjölgar um 2,4%. Mestur áhugi er sem fyrr á viðskiptafræði en jafnframt hefur umsóknum fjölgað verulega í hjúkrunarfræði, kennaranámi og svokölluðum STEM-greinum. Umsóknum í hjúkrunarfræði fjölgar um…Lesa meira