Náttúrubarnahátíð á Ströndum helgina 10.-12. júlí

Það verður líf og fjör á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum helgina 10.-12. júlí en þá verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin í tíunda sinn. Hátíðin er fjölskylduhátíð sem fer að mestu fram utandyra og einkennist dagskráin af fjölbreyttri útivist, náttúrutúlkun, tónlist, fróðleik og fjöri fyrir náttúrubörn á öllum aldri.

Líkt og undanfarin ár er ókeypis að taka þátt í hátíðinni og öllum viðburðum hennar. Það er einnig frítt fyrir hátíðargesti að gista í tjaldi hjá gistihúsinu Kirkjubóli sem er rétt hjá Sævangi, en þar er þó ekki eiginlegt tjaldstæði og ekki aðgangur að rafmagni. Það er hins vegar frábært tjaldsvæði á Hólmavík þar sem er rafmagn og líka ýmsir gististaðir í nágrenninu. Veitingasala er á Sauðfjársetrinu (Kaffi Kind) alla helgina og er þar nóg úrval af allskonar réttum bæði fyrir grænkera og aðra.

Dagskrána má sjá hér:

Föstudagur 10. júlí
17:30 Fjölskyldugönguferð í fjörunni
18:30 Setning hátíðarinnar og veðurgaldur
18:30 Hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur (grænmetis og ekki) og ís í Sævangi
19:00 Mögnuð töfrasýning með Jóni Víðis
20:00 Æsispennandi Náttúrubarnakviss

Laugardagur 11. júlí
12:00 Náttúrujóga
13:00 Sólmyrkvastuð með Sævari Helga Bragasyni
14:00 Náttúrufjör: Kajakar, tilraunastofan, náttúrubingó, pínulítil lífveru tattú með Náttúruminjasafni Íslands, grjót, urð og hamragljúfur með Árnastofnun, Ullarævintýri með Fine Foods, skrifað með fjöðrum, grillaðar pylsur og fleira
15:30 Spennandi fjörudýrasmiðja með Náttúruminjasafni Íslands
17:00 Stórskemmtileg leikjasmiðja með töframanninum Jóni Víðis
18:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið
18:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur og súpu
20:30 Fjölskyldutónleikar með Gunna og Felix
21:30 Drauga- og tröllasögur í Sagnahúsinu

Sunnudagur 12. júlí
11:00 Núvitundarævintýri
12:00 Stórskemmtilegt skemmtiatriði
12:30 Hægt að kaupa grillaðar pylsur, súpu og ís
13:00 Skapandi náttúrusmiðja
15:00 Fjölskylduplokk

-fréttatilkynning