
Boðið var upp á bátasiglingar og leiktæki í Brákarey. Ljósm. hig
Brákarhátíð í Borgarnesi gekk vel
Brákarhátíð var haldin í Borgarnesi frá fimmtudegi til laugardags. Það eru Hollvinasamtök Borgarness sem skipuleggja hátíðina en um er að ræða sannkallaða fjölskyldu- og bæjarhátíð þar sem frítt var inn á alla skipulagða viðburði. Veðrið var skaplegt; lítil sól, dumbungur en oftast þurrt. Inn í dagskrána var líkt og á síðasta ári fléttað utan- og fjallvegahlaupinu Hafnarfjall Ultra sem nú var í annað sinn haldið af Hlaupahópnum Flandra. Mjög hvasst var á fjöllunum, sérstaklega framan af í hlaupinu, dálítil úrkoma og býsna kalt. Að sögn Flandra fólks gekk þó allt vel fyrir sig og án teljandi óhappa. Samtals luku 113 keppendur hlaupinu, en þar var hægt að velja um fjórar vegalengdir.