Við öllu búnir fyrir almyrkva á sólu

Undirbúningi í tengslum við almyrkvann miðvikudaginn 12. ágúst miðar almennt vel og hann er á mörgum stöðum á lokametrunum. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans. Minnisblaðið var lagt fram á fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku. Sem fyrr eru það tilmæli stjórnvalda að fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi. Stýrihópur Stjórnarráðsins hefur farið í vettvangsferðir á Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanes og kynnt sér vinnuna sem þar er í gangi.