
Landsmót hestamanna hefst um næstu helgi
Nú hefur dagskrá Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal tekið á sig lokamynd. Í henni má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið sem fram fer dagana 5.–11. júlí. Á setningarhátíð á fimmtudagskvöldinu 9. júlí verður hópreið og þá mætir Karlakórinn Heimir á athöfnina eins og hefð er fyrir í Skagafirði.