
Nýtt starfsmannahús í Fíflholtum
Undanfarið hefur verið unnið að endurnýjun starfsmannahúss í Fíflholtum á Mýrum. Sorpurðun Vesturlands, sem rekur urðunarstaðinn í Fíflholtum, samdi við Trésmiðjuna Akur á Akranesi um byggingu á nýju húsi sem gegnir hlutverki starfsmannahúss en er einnig þjónustuhús fyrir viðskiptavini urðunarstaðarins.