Fréttir

true

Skagamann með mikilvægan sigur á Val

Viktor Jónsson var hetja Skagamanna þegar hann tryggði 1-0 sigur ÍA gegn Val í tíundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi. Spilað var á Jaðarsbökkum. Með sigrinum kemst ÍA upp fyrir Val með betri markatölu en bæði lið eru nú með 15 stig í 4.-6. sæti deildarinnar, ásamt Breiðabliki. Markið skoraði Viktor á…Lesa meira

true

Gleðilega hátíð!

Í dag er þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní. Starfsfólk Skessuhorns – fréttaveitu Vesturlands – sendir landsmönnum öllum hamingjuóskir í tilefni dagsins.Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip væntanlegt á Akranes í fyrramálið

Skemmtiferðaskipið Le Bellot kemur óvænt á Akranes í fyrramálið, á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Skipið átti upphafalega að sigla til Grundarfjarðar, en áform breyttust vegna veðurs. Skipið er væntanlegt á Akranes á milli klukkan 7:30 og 8:00 í fyrramálið.  Þetta er fyrsta skemmtiferðaskipið sem heimsækir Akranes í nokkur ár og jafnframt sama skip og kom fyrst…Lesa meira

true

Alvarlegt umferðarslys í Borgarfirði

Á fjórða tímanum í dag varð harður árekstur tveggja bíla á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði, á veginum milli Reykholts og Arnheiðarstaða. Þrír voru í bílunum og voru allir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Beita þurfti klippum á bílana til að losa fólkið úr þeim. Mikill viðbúnaður er á vettvangi árekstursins og er vegurinn enn lokaður…Lesa meira

true

Krambúðinni á Akranesi verður lokað

Samkaup hafa sagt upp öllu starfsfólki Krambúðarinnar við Garðagrund 1 á Akranesi og mun versluninni verða lokað á næstu dögum. Hér er um hverfisverslun að ræða sem hefur verið opin alla virka frá klukkan 8 á morgnana til 23:30 á kvöldin, en kl. 9-23:30 um helgar. Nú stendur yfir rýmingarútsala á vörum. Samhliða lokuninni tapast…Lesa meira

true

„Nei, nei, ég er ekkert mikið fyrir sviðsljósið“

Karl Þórðarson, knattspyrnumaðurinn knái frá Akranesi Karl Þórðarson er fæddur á Akranesi 31. maí 1955 og ólst þar upp. Sagan segir að hann hafi verið með bolta á tánum frá því hann byrjaði að ganga. Ferill hans spannar langt tímabil. Hann varð bikarmeistari árin 1978 og 1984, Íslandsmeistari árin 1974, 1975, 1977, 1984, og 1994…Lesa meira

true

Enn er vegið að atvinnulífi við Breiðafjörð

Stjórn Félags atvinnulífsins í Stykkishólmi hefur sent innviðaráðherra, þingmönnum NV kjördæmis, Vegagerðinni og sveitarstjórnum bréf vegna þess að nú er útlit fyrir að Breiðafjarðarferjan Baldur verður ekki í siglingum yfir Breiðafjörð fyrr en um miðjan júlímánuð. Lýst er alvarlegar afleiðingar stöðvunar á siglingum Baldurs yfir Breiðafjörð:„Félag atvinnulífs í Stykkishólmi vill með þessu erindi lýsa yfir…Lesa meira

true

Nýr sveitarstjóri ber sterkar taugar til samfélagsins

Rætt við Lilju Björg Ágústsdóttur í Dalabyggð Lilja Björg Ágústsdóttir tók í gær við starfi sveitarstjóra í Dalabyggð. „Ég er fædd og uppalin í Búðardal en mamma mín heitir Sigríður Eiríksdóttir og er sjúkraliði en hún vann lengst af á Silfurtúni. Pabbi minn heitinn hét Ágúst Magnússon og var húsasmíðameistari. Ég bjó í Dölunum þar…Lesa meira

true

Telja að ekki sé gætt að hagsmunum villtra laxa og veiðiréttareigenda

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt bókun um lagareldi. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir áhyggjum af því að við smíði frumvarps Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi og meðferð þess á Alþingi virðist sem hagsmunir veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga víða um land, sem byggja afkomu sína meðal annars á tekjum af sjálfbærri…Lesa meira

true

Bæjarstjórn og nýr bæjarstjóri tekur til starfa

Nýkjörin bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar kom saman til fundar fimmtudaginn 11. júní. Á fundinum var skipað í ráð og nefndir og var Fannar Þór Þorfinnsson kjörin forseti bæjarstjórnar og Aðalsteinn Jósefsson formaður bæjarráðs. Um aðra nefndarskipan má lesa um á upplýsingasíðu sveitarfélagsins. Jafnframt var samþykkt að Birkir Jón Jónsson verði ráðinn bæjarstjóri og hefur hann hafið störf.Lesa meira