Eldislax í kví vestur á fjörðum. Ljósm. úr safni

Telja að ekki sé gætt að hagsmunum villtra laxa og veiðiréttareigenda

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt bókun um lagareldi. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir áhyggjum af því að við smíði frumvarps Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi og meðferð þess á Alþingi virðist sem hagsmunir veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga víða um land, sem byggja afkomu sína meðal annars á tekjum af sjálfbærri nýtingu villtra laxastofna, hafi ekki verið teknir til fullnægjandi skoðunar. Í sveitarfélaginu eru margar af mikilvægustu og gjöfulustu lax- og silungsveiðiám landsins. Leigutekjur af veiðihlunnindum á svæðinu nema um 850 milljónum króna á ári, en þær tekjur renna að langmestu leyti til bænda og landeigenda og eru mikilvæg undirstaða í afkomu margra heimila. Verðmætasköpun í tengslum við slíkar veiðar er þó mun umfangsmeiri en þessar tölur gefa til kynna. Hún verður til í formi sölu veiðileyfa, reksturs veiðihúsa, gistingar, veitinga, leiðsagnar, flutninga og annarrar þjónustu. Starfsemi tengd slíkum veiðum skapar atvinnu og verðmæti í byggðarlögum um land allt þar sem aðrir atvinnumöguleikar eru oft takmarkaðir.“