Viktor Jónsson í leiknum. Ljósm. Jón Gautur foto

Skagamann með mikilvægan sigur á Val

Viktor Jónsson var hetja Skagamanna þegar hann tryggði 1-0 sigur ÍA gegn Val í tíundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi. Spilað var á Jaðarsbökkum. Með sigrinum kemst ÍA upp fyrir Val með betri markatölu en bæði lið eru nú með 15 stig í 4.-6. sæti deildarinnar, ásamt Breiðabliki. Markið skoraði Viktor á 40. mínútu leiksins eftir stungusendingu frá Gísla Eyjólfssyni.