Le Bellot, fyrsta skemmtiferðaskipið sem kom til Akraness, lagðist að bryggju að morgni 31. júlí 2017. Ljósm. úr safni Skessuhorns/bþb

Skemmtiferðaskip væntanlegt á Akranes í fyrramálið

Skemmtiferðaskipið Le Bellot kemur óvænt á Akranes í fyrramálið, á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Skipið átti upphafalega að sigla til Grundarfjarðar, en áform breyttust vegna veðurs. Skipið er væntanlegt á Akranes á milli klukkan 7:30 og 8:00 í fyrramálið.  Þetta er fyrsta skemmtiferðaskipið sem heimsækir Akranes í nokkur ár og jafnframt sama skip og kom fyrst til Akraness sumarið 2017. Um borð í því eru 250 farþegar.