Enn er vegið að atvinnulífi við Breiðafjörð

Stjórn Félags atvinnulífsins í Stykkishólmi hefur sent innviðaráðherra, þingmönnum NV kjördæmis, Vegagerðinni og sveitarstjórnum bréf vegna þess að nú er útlit fyrir að Breiðafjarðarferjan Baldur verður ekki í siglingum yfir Breiðafjörð fyrr en um miðjan júlímánuð. Lýst er alvarlegar afleiðingar stöðvunar á siglingum Baldurs yfir Breiðafjörð:
„Félag atvinnulífs í Stykkishólmi vill með þessu erindi lýsa yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar á þeim tíma sem ferðaþjónustan stendur sem hæst. Er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem vegið er að atvinnulífinu á svæðinu, síðast með tillögu um afnám skelbóta. Þó því máli  hafi verið frestað veldur það vissulega enn óvissu og óöryggi.

Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er. Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara.

Áhrifin eru þegar farin að koma skýrt fram. Fjöldi ferðamanna sem hafði skipulagt ferðalag um Breiðafjörð og Vestfirði kemst einfaldlega ekki leiðar. Þetta eru gestir sem hefðu annars dvalið á svæðinu, nýtt sér fjölbreytta þjónustu og haldið hjólum atvinnulífsins í gangi á svæðinu.

Baldur er lífæð svæðisins þar sem vegasamgöngur hafa verið vanræktar lengi, malarvegir að stærstum hluta, má þá nefna að Skógarstönd er nær ófær frá Narfeyri að Gljúfurá sökum þess.

Þetta hefur bein, mælanleg áhrif á rekstur fyrirtækja í Stykkishólmi sem og svæðinu öllu. Hótel, gistiheimili, veitingastaðir, afþreyingarfyrirtæki og verslanir missa mikilvægar tekjur á þeim tíma árs sem skiptir mestu máli. Það er ljóst að slíkt tap verður hvorki bætt upp síðar né án verulegra áhrifa á afkomu margra fyrirtækja.

Jafnframt viljum við undirstrika þann skaða sem hlýst af minni fyrirsjáanleika í samgöngum. Þegar þjónusta af þessu tagi er felld niður með skömmum fyrirvara veikist trúverðugleiki hennar. Ferðaskrifstofur, skipuleggjendur og einstakir ferðamenn treysta á stöðugleika og festu við skipulagningu ferða og þegar sú forsenda bregst hefur það neikvæð áhrif langt út fyrir þann tíma sem stöðvun varir. Þetta getur haft varanleg áhrif á eftirspurn og nýtingu ferjunnar í framtíðinni og þar af leiðandi afkomu fyrirtækja á svæðinu einnig.

Við vekjum athygli á að sveitarfélög á svæðinu hafa þegar óskað eftir samtali við stjórnvöld til að rýna stöðuna og leita lausna. Félag atvinnulífs í Stykkishólmi styður þá kröfu heilshugar og telur mikilvægt að brugðist verði hratt og markvisst við.

Að okkar mati er ekki verjandi að bæta samgöngur á einum stað með þeim hætti að það bitni á öðru svæði. Slík nálgun vinnur gegn jafnvægi, veikir atvinnulíf og getur haft langvarandi áhrif á þróun og ímynd svæðisins í heild.

Við hvetjum stjórnvöld til að sýna jafnræði milli landshluta og grípa tafarlaust til aðgerða sem tryggja áframhaldandi, áreiðanlegar siglingar yfir Breiðafjörð eða finna aðrar lausnir sem draga úr þeim skaða sem þegar er orðinn og koma í veg fyrir frekara tjón.“