
Alvarlegt umferðarslys í Borgarfirði
Á fjórða tímanum í dag varð harður árekstur tveggja bíla á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði, á veginum milli Reykholts og Arnheiðarstaða. Þrír voru í bílunum og voru allir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur.
Beita þurfti klippum á bílana til að losa fólkið úr þeim. Mikill viðbúnaður er á vettvangi árekstursins og er vegurinn enn lokaður þótt fjórir tímar séu liðnir frá slysinu. Rannsakendur eru á vettvangi frá Lögreglunni á Vesturlandi, Rannsóknanefnd umferðarslysa sem og frá tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það segir sitt um alvarleika slyssins.
Hálsasveitarvegur er enn lokaður á milli Reykholts og Húsafells. Hægt er að fylgjast með stöðu vegarins á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is, en bent er á hjáleiðir annars vegar um Hvítársíðu eða Hálsasveit að sunnanverðu.
Uppfært klukkan 20:20: Búið er að opna fyrir umferð um Hálsasveitarveg.