Svipmynd úr Krambúðinni á Akranesi. Ljósm. vb

Krambúðinni á Akranesi verður lokað

Samkaup hafa sagt upp öllu starfsfólki Krambúðarinnar við Garðagrund 1 á Akranesi og mun versluninni verða lokað á næstu dögum. Hér er um hverfisverslun að ræða sem hefur verið opin alla virka frá klukkan 8 á morgnana til 23:30 á kvöldin, en kl. 9-23:30 um helgar. Nú stendur yfir rýmingarútsala á vörum. Samhliða lokuninni tapast 12 störf við verslun á Akranesi. Það upplýsir Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA, en Þórhildur Þórisdóttir eiginkona hans hefur reyndar verið verslunarstjóri í hartnær aldarfjórðung.