Fréttir

true

Kveðjufundur stjórnar SSV

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa verið starfrækt frá árinu 1969 og eru sameiginlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vesturlandi sem frá 1. júní síðastliðnum eru átta talsins. Starfssvæði samtakanna nær frá botni Hvalfjarðar í suðri að botni Gilsfjarðar í norðri. Öll sveitarfélög á Vesturlandi eiga aðild að SSV og fulltrúa í stjórn. Samkvæmt lögum SSV er…Lesa meira

true

Gjaldtaka hefst á ný á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst hefja gjaldtöku á ný á hafnarsvæðinu mánudaginn 15. júní nk. Sem fyrr er tilgangur gjaldtökunnar að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir: „Í kjölfar samráðs við ferðaþjónustuaðila á svæðinu hefur sú breyting orðið á fyrirkomulagi gjaldtöku að…Lesa meira

true

Fjöldi hjólreiðafólks verður á ferðinni á morgun í uppsveitum Borgarfjarðar

Á morgun, laugardaginn 13. júní, stendur Breiðablik fyrir Greflinum, árlegri malarhjólakeppni í Borgarfirði. Reiknað er með að keppendur verði um 170. Fara þeir þrjár mismunandi vegalengdir sem liggja víða um Borgarfjörðinn. Þeir sem lengst hjóla fara 207 kílómetra. Lagt verður af stað frá félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal, upp í Þverárhlíð þar sem þvælst verður yfir…Lesa meira

true

Bjóða út vega- og brúargerð í Gufudalssveit

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð í Gufudalssveit. Innifalið í verkinu er bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028, en tilboðum skal skila í verkið fyrir 14. júlí. Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í…Lesa meira

true

Tinni frá Árdal sló heimsmet

Við höldum hér áfram að grípa niður í frásagnir af kynbótasýningum hrossa sem nú standa sem hæst. Eiðfaxi.is hefur sagt frá þessu af miklum dugnaði, en vestlensk hross hafa verið að gera virkilega gott mót að undanförnu og nægir þar að nefna hryssurnar Brynju og Blíðu sem sagt var frá hér á vefnum fyrr í…Lesa meira

true

Blíða frá Bergi með hæstu heildareinkunn

Daginn eftir að Brynja frá Nýjabæ var leidd fyrir dóm í gær var röðin komin að hryssunni Blíðu frá Bergi í Grundarfirði á kynbótasýningu á Hellu í morgun. Þar sýndi Þorgeir Ólafsson Blíðu og fékk hún hæstu einkunn sem hryssa hefur fengið frá upphafi; 9,02. Eiðfaxi greinir frá. Blíða er ræktuð af þeim Önnu Dóru…Lesa meira

true

Blíða í veðurkortunum fyrir næstu daga

Veðurstofan spáir hægri austlægri eða breytilegri átt í dag, léttskýjað sunnan- og vestanlands, en rigning með köflum seint í kvöld og nótt. Skýjað annars staðar og smá væta af og til. Norðan- og norðaustan 5-13 m/s á morgun. Léttir víða til á Suður- og Vesturlandi, en þokusúld eða dálítil rigning fyrir norðan og austan. Hiti…Lesa meira

true

Færri Íslendingar á faraldsfæti

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu 163 þúsundum í maí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu, sem er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. Bandaríkjamenn voru tæplega þriðjungur allra brottfara. Brottfarir Íslendinga voru um 59 þúsund í maí, 11% færri en í sama mánuði árið áður, en uppsafnað frá áramótum hafa Íslendingar farið 14,5%…Lesa meira

true

Sláttur er hafinn í Borgarfirði

Í gær hófst sláttur í Norðtungu í Þverárhlíð. Eftir því sem næst verður komist er það fyrsti sláttur sumarsins í héraðinu. Blaðamaður Skessuhorns hitti í gærkveldi Ísak Elí Yoakum vélamann í Norðtungu þar sem hann var að ljúka slætti á tíu hektara spildu næst Þverá. Verkið vannst hratt enda beitti hann öflugri 270 ha New…Lesa meira

true

Gott atvinnuástand og vaxandi ferðaþjónusta ástæða fjölgunar

Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ var spurður um hverju hann þakkar hlutfallslega mikla fjölgun íbúa á síðustu sex mánuðum, eins og fjallað er um í frétt hér að neðan. „Hingað hefur fólk verið að flytja í vetur og það má fyrst og fremst þakka góðu atvinnuástandi. Sjávarútvegur er að skila okkur um helmingi útsvarstekna, er…Lesa meira