
Hafnarsvæðið. Ljósm. Stykkishólmur
Gjaldtaka hefst á ný á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi
Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst hefja gjaldtöku á ný á hafnarsvæðinu mánudaginn 15. júní nk. Sem fyrr er tilgangur gjaldtökunnar að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu.