Blíða frá Bergi og Þorgeir Ólafsson. Ljósm. Eiðfaxi

Blíða frá Bergi með hæstu heildareinkunn

Daginn eftir að Brynja frá Nýjabæ var leidd fyrir dóm í gær var röðin komin að hryssunni Blíðu frá Bergi í Grundarfirði á kynbótasýningu á Hellu í morgun. Þar sýndi Þorgeir Ólafsson Blíðu og fékk hún hæstu einkunn sem hryssa hefur fengið frá upphafi; 9,02. Eiðfaxi greinir frá. Blíða er ræktuð af þeim Önnu Dóru Markúsdóttur og Jóni Bjarna Þorvarðarsyni á Bergi. Hlaut hún 8,69 fyrir sköpulag með einkunnina 9,0 fyrir höfuð, háls, herðar og bóga, bak og lend og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hún 9,20 með 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, skeið, fet og hægt tölt.