Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að sumri til. Ljósm. Vegagerðin

Bjóða út vega- og brúargerð í Gufudalssveit

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð í Gufudalssveit. Innifalið í verkinu er bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028, en tilboðum skal skila í verkið fyrir 14. júlí.